Dagur 9 - Matartíminn var eitt sinn á milli 12:00 og 13:00
By Rikki on Jun 10, 2008 | In Main category
Nú borða ég bara þegar Úlfi hentar ..
Ég fór að hugsa um það kl 11 í morgun að nú væri ég farinn að vera svangur og það leið 1 og 1/2 tími þangað til Úlfur var orðinn nógu rólegur (sofandi) til að ég gæti borðað restina af grænmetisréttinum sem Ásta gerði á Sunnudaginn.
Annars eru helstu atburðir dagsins þeir að úlfur fyllti bleyjuna sína í morgun og ég þurfti að setja hann undir sturtuna og skipta sjálfur um bol. (Það voru örugglega 30°c hérna í dag þannig að maður var bara léttklæddur)
Þá borðaði hann frekar í minni kantinum (3 x 60ml í stað 3 x 90ml) og svaf bara 2 tíma á röltinu í stað 3 tíma.
Þá get ég sagt ykkur frá góðri hugmynd að gjöf. Við Ásta keyptum gjafabréf á tælenskri nuddstofu handa manninum sem lánaði okkur sumarhúsið. Við Úlfur fórum og skiluðum lyklunum í dag ásamt því að gefa honum umslagið. Þegar hann sá hvað þetta var (1 klukkustundar tælenskt ilmolíunudd) þá kom frekar kindalegur svipur á hann og hann sagði “ég mun aldrei þora þessu” ![]()
Þannig að svona nudd-tíma gjafabréf eru alveg stórsniðugt því þá mun viðkomandi aðeins þurfa að taka á sjálfum sér og víkka sjóndeildarhringinn.
| « Dagur 10 - Myndir | Dagur 8 - Vika 2 hefst » |