Dagur 17 - Vísitöluforeldrar
By Rikki on Jun 18, 2008 | In Main category
Hér er svosem ekki mikið að frétta.
Við Úlfur fórum og heimsóttum Mömmu í vinnuna í gær og fórum síðan í vinnuna hjá Pabba hans þar sem allir dáðust að honum og hrósuðu Pabba hans með “Job well done” ![]()
Aðstoðarfólk aðalritarans var eins og það hefði aldrei séð barn áður og starði bara og spurði hvað hann héti og hvaðan nafnið væri,, hvað hann væri með fallegt hár o.s.frv.
Síðan fór öll fjölskyldan heim með strætó og við Ásta keyptum nýja tegund af þurrmjólk handa honum, því hann fæst ómögulega til að drekka þetta þykka sull sem á að hjálpa honum að halda mjólkini niðri. Hann þarf heldur ekki lengur á því að halda eftir tímana hjá hnykklækninum..
Já, hnykklæknirinn (Osteopath), við Úlfur fórum til hans á Mánudaginn og hann fór afar varlega með Úlf og mér sýndist hann nú ekki vera að gera mikið, en ég held að hann hafi gert eitthvað með fingrunum þegar hann hélt undir bakið á honum og höfuðið.
Úlfur er í öllu falli orðinn fínn og vandamálið með að hann geti ekki snúið höfðinu til vinstri er alveg farið.
Við Ásta vorum að hlægja að því hvað við værum “dæmigerðir” foreldar. Barnið stjórnar öllu og við borðuðum kvöldmatinn kl 9:40 í gærkvöldi og fórum á fætur eins og draugar eldsnemma í morgun með áhyggjur af því að Úlfur hefði það ekki nógu gott.
O jæja, hann drakk þurrmjólkina í morgun, þannig að nú er hægt að fara að venja hann við hana smátt og smátt þannig að ég geti farið með hann í heimsóknir og aðrar lengri ferðir.
Bless í bili,
- Rikki
| « Mánuðurinn að verða búinn | Dagur 12 - » |