• Blog A
  • Blog B
  • Linkblog
  • Ásta Sólveig

Dagbók Ástu Sólveigar

Bloggað frá París
  • Home
  • Contact
  • Log in
  • September 2010
    Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
     << <   > >>
          1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30    
  • Dagbók Ástu Sólveigar

  • Long Description: Long Description: Long Description: Long Description: Long Description:

    • Recently
    • Archives
    • Categories
    • Latest comments
    • Myndir
  • Search




  • Categories

    • All
    • Main category
  • XML Feeds

    • RSS 2.0: Posts, Comments
    • Atom: Posts, Comments
    What is RSS?

Úlfur Fróði Ríkharðsson

By admin on Feb 9, 2008 | In Main category

Þá er hann kominn í heiminn hann Úlfur Fróði.

Ásta átti tíma í aukaskoðun í gær, Föstudag, þar sem hún var með blóðþrýsting í hærri kantinum seinasta Mánudag, sem átti að vera seinasta skoðunin fyrir fæðingu.

Hún semsagt fór í tímann í gær og þar var henni sagt að strákurinn væri farinn að haga sér eins og þetta “væri bara búið", þ.e. það hafði dregið úr vaxtarhraða og hann hreyfði sig öðruvísi. Hún mátti velja á milli þess að leggjast inn í gær eða koma morguninn eftir (Laugardag). Hún valdi að leggjast inn strax (eins og Ásta er, “ekki geyma það til morguns sem þú getur gert í dag") og var sett í “monitoring".

Hún hringdi síðan í mig í vinnuna kl 5 og bað mig að koma með töskuna sem hún hafði undirbúið með fötum og öðru sem þyrfti á spítalanum. Hún fór svo að fá smá hríðir með kvöldinu og þar sem ekkert annað gerðist þá gerðum við alveg eins ráð fyrir að þetta kæmi ekki fyrr en með morgninum og ég fór heim að um 10 leitið og var sofnaður um 12 leitið.

Síðan kl 00:30 þá hringir Ásta og segir að þetta stefni allt í keisara, það séu bara hríðir og það dró niður í hjatslættinum hjá barninu í hvert skipti. Ég var svo ofboðslega þreyttur að ég bað hana að hringja í mig um leið og einhver ákvörðun yrði tekin.

Ásta hringdi svo aftur í mig 4:20 og segist vera á leiðini í keisarann. Þá dreif ég mig í sturtu og rauk af stað.

Þegar ég svo kom upp á 5 hæðina, þar sem fæðingardeildin var þá var mér bent á að bíða í herberginu við hliðina og sagt að “læknirinn kemur svo með barnið” .. HA ? Var þetta bara búið ?

En nei, ég kom víst rétt um það leiti sem Ásta fór inn í fæðingarherbergið en ég þurfti nú samt ekki að bíða nema að því er mér fannst 10-15 mínútur áður en konan kom með lítinn böggul út úr herberginu við hliðina og sagði mér að ég mætti koma og sjá.

Og mikið afskaplega var þetta skrítið, lítið kríli, allur purpura rauður og viðkvæmur en samt svo “tilbúinn", með húðina og fingurna, litlar neglur og fíngert hár bæði á bakinu og höfðinu.

Fljótlega fór hann samt að skipta litum og fór að líkjast okkur hinum.

Ásta sgði mér svo eftir á að hún hefði byrjað að missa vatnið rétt áður en hún hringdi í seinna skiptið og þá hefði hjartslátturinn hjá stráknum orðið mjög óreglulegur, stokkið upp og niður, og hún hefði bara verið drifin inn í snatri á skurðstofuna.

Hérna eru myndir frá seinasta sólarhring.

- Rikki

Loksins komnar myndir

By asta on Feb 7, 2008 | In Main category

Þetta er búin að vera löng pása!

Ég er loksins komin með myndir inn á bloggið mitt, og þá hef ég aftur áhuga á að blogga. Til að byrja með settum við bara myndir frá því í sumar, frá brúðkaupinu, heimsókn Alexar vinkonu okkar til Íslands og svo frá brúðkaupsferðinni til Korsíku í haust. Vinnufélagar mínir söfnuðu nefnilega inn á reikning á ferðaskrifstofu í staðinn fyrir að gefa gjafir svo við fengum alveg fullt upp í ferðina. Svo er í vinnslu að setja inn nokkrar bumbumyndir áður en litli baukurinn birtist, en þá verður um nóg að hugsa að taka bara myndir af honum.

Annars hef ég það gott, búin að vera í fríi síðan á mánudag og finnst það ferlega skrítið. En ég er samt búin að hafa nóg fyrir stafni. Búin að hvíla mig og sofa, endurskipuleggja skápana til að finna pláss fyrir dótið hans og pakka ofaní tösku til að taka með á fæðingardeildina. Ég fékk 3ja km langan lista af dóti til að taka með fyrir okkur bæði svo ég var orðin alveg rugluð í þessu, en ég held að nú sé allt komið. Annars mun ég þá bara biðja Rikka um að redda mér, ef hann verður þá í ástandi til að hugsa skýrt ;). En þetta er allt voða spennandi…

England

By asta on Nov 10, 2007 | In Main category

Nu er eg a Englandi i nokkra daga fyrir vinnuna - kann ekki ad setja islenska lyklabordid a. Thad er fint ad koma her af og til, lengst uti i sveit i sud austur englandi, rett hja Canterbury. Eg by i litlu starfsmannahusi og borda a medferdarheimilinu. Eg gekk i vinnuna i morgun, eftir litlum sveitavegum i gegnum tragong a koflum. Maturinn er hollur og godur (eldadur med atroskunarsjuklinga i huga) og vinnufelagarnir allt mjog fint folk. Thad er haust her, trein ordin brun, raud og appelsinugul og rok undir graum himni. Virkilega god tilbreyting fra borginni. Ekki that ad Paris er lika mjog falleg a haustin. Nu er ad koma matur, namm, namm. Srifa meira seinna.

Róleg vetrarhelgi

By asta on Nov 4, 2007 | In Main category

Þá er helgin að verða búin. Hér er kominn vetur samkvæmt dagatalinu en það er samt svo milt veður að þetta er meira eins og langt haust (búið að vera síðan í sumar XX( Ég nota bara tímann til að hafa það gott inni, búin að þvo og gera fínt hjá mér, elda og gera tilbúið til að taka með mér mat í vinnuna á morgun. Hér er hægt að gera svo marg eftir árstíðunum. Í gær fór ég á útimarkað hér rétt hjá og keypti grænmeti. Nú er árstíminn fyrir grasker svo ég keypti góðan bita sem verður notaður í súpu eitthvert kvöldið. Ég prufaði það í fyrsta sinn um seinustu helgi og hún tókst bara nokkuð vel, bara aðeins of þunn - næst verður hún þykkari.

Annars er aðal frétt helgarinnar að við erum búin að kaupa kerru fyrir tilvonandi nýja fjölskyldumeðliminn. Ég ætlaði ekkert að stressa mig á þessu strax, en þegar ég fór að athuga hvar ég gæti keypt kerruna sem ég var búin að sigta út, kom það á daginn að Maclaren er að fara að hætta með hana og hún er ekki til lengur í flestum búðum. Í stresskasti dró ég Rikka út í gær til að kaupa seinustu svona kerruna í dalnum, í kínahverfinu af öllum stöðum, seinastu sem hann átti til , úff. Þar sem hún er að hverfa af markaðnum keypti ég líka þá aukahluti sem okkur gæti vantað, flísfóðraða svuntu og höfuðpúða bæði í bláu og rauðu, hmm það er aldrei að vita nema einhvertíman verði einhver annar í kerrunni sem hefur frekar smekk fyrir rauðu. Ekki það að þessi rauði litur er líka mjög töff fyrir stráka. Hér er nefnilega mjög ópraktískt að vera með einhvern torfæru barnavagn, ólík heima á klakanum. Hér er allt svo lítið og þröngt, allt fá 18. aldar íbúðunum út á mjóar gangstéttirnar. Til að vera ekki eins og fílar á götunum er fólk meira með litlar kerrur sem komast inn og út úr strætó og upp og niður í neðanjarðarkerfið. Maður kippir bara upp kerrunni með barninu í og hleypur upp og niður stigana. Við (og litli gaur auðvitað) erum semsagt orðin stoltir eigendur að fyrsta tryllitækinu, grárri Maclaren Techno XT sem skiptir litum og er hægt að nota alveg frá fæðingu - þó ég sé reyndar að spá í að hafa hann í poka framan á mér til að byrja með, sé til hvernig það gengur…

Byrjuð að blogga

By asta on Nov 1, 2007 | In Main category

Þá er ég loksins komin með blogg eins og allt almennilegt fólk á þessari öld! Þetta var orðin algjör hneisa, eins og ég er líka löt að vera í sambandi við fólk. En þá er það vandamál úr sögunni, segi fólki bara að tékka á blogginu mínu ef það vill fá fréttir af mér. Hér get ég sett inn myndir af (tilvonandi) fjölskyldunni og deilt með ykkur öllu sem er að gerast í mínu annars hversdagslega lífi B).

1. nóvember er frídagur í Frakklandi, allraheilagramessa. Við fórum ekkert út á Halloween í gær, ég var svo þreytt að ég vildi bara vera inni við upphitaða pizzu og Sopranos. Annars er Halloween eiginlega dottið uppfyrir hér. Það var rosa mikið gert úr þessu fyrir nokkrum árum, allir með svartar og appelsínugular skreytingar, en svo er eins og áhuginn hafi bara dáið. Það er líka engin hefð fyrir þessu hér, þetta var aðalega gert til að geta selt meira út á þemað. Það góða er að við vorum í fríi, svo við skelltum okkur niður í bæ í búðir. Betra að versla núna en í Desember þegar allt verður pakkað af fólki.

Læt þetta duga í bili, þarf að hleypa kisunni okkar inn. Hún stelst alltaf út þegar við opnum út á svalir og ber sig svo ámátlega þegar hún lokast úti - meiri kjáninn!

<< 1 2 3 4 5

©2010 by Ásta Sólveig Georgsdóttir | Contact | evoCamp skin | Credits: Blog Design | multiple blogs | web hosts | paid blog