Duglegur að stækka
By asta on Feb 22, 2008 | In Main category
Við fórum út á barnaheilsugæslustöð í morgun til að láta vikta Úlf Fróða eftir vikuna. Þetta var fyrsti göngutúrinn okkar í hverfinu og gekk bara vel. Úlfur svaf bara af sér allan borgarskarkalann sem er alltaf einhver þó við séum í rólegu hverfi. Heilsugæslan er bara hérna rétt handan við hornið svo við vorum ekki nema 5 mín. á leiðinni. Hjúkkan sem tók á móti okkur hrósaði okkur svo í hástert þegar hún var búin að vikta Úlf því hann er búinn að vera svo duglegur að þyngjast - orðinn 2780 gr. eftir vikuna, eða næstum 200 gr. aukning! Það eru 27 gr. á dag, en það er víst mjög gott. Hún sagði að brjóstagjöfin gengi greinilega vel hjá okkur og að við skildum halda áfram svona. Svo eigum við að koma aftur á mánudaginn og koma tvisvar í viku þangað til hann nær þremur kílóum. Gott plan það!
Orðinn 12 daga
By asta on Feb 21, 2008 | In Main category
Jæja, þá er kominn dagurinn sem Úlfur Fróði átti að fæðast - og hann bara orðinn 12 daga gamall. Í morgun tókst honum að velta sér á hliðina þegar pabbi hans lagði hann á bakið og svo reynir hann meira og meira að halda höfði. Það mun sennilega koma hjá honum á næstu vikum. Á morgun fer ég með hann til að láta vikta hann. Það á að vikta hann einu sinni í viku úti á barnaheilsugæslu sem er hérna rétt hjá. Það verður spennandi að sjá hvað hann hefur þyngst mikið. Nú er hann í fasta svefni eftir baðið og kvöldmatinn enda búinn að eiga erilsaman dag, búinn að spræna tvisvar út í loftið eins og garðúðari þegar verið var að skipta um bleyju. Þá þurfti mamma að skipta um allan gallan en honum fannst þetta allt mjög skemmtilegt![]()
Komin heim
By asta on Feb 19, 2008 | In Main category
Jæja, þá erum við komin heim, ég og Úlfur Fróði og lífið að komast í fastar skorður. Við erum búin að vera að finna okkar rútínu hérna, hann í því hvenær hann vill sofa, borða og fá skipt um bleyju og ég í því að laga mig að hanns róli og finna tíma til að hvíla mig inn á milli. Annars gengur þetta mjög vel, hann er mjög rólegur og liggur stundum bara og horfir á heiminn án þess að vilja neitt láta trufla sig. Svo er hann duglegur að borða og sofa, eins og þær sögðu á fæðingardeildinni: hann er lítill en hann er ákveðinn í því að stækka! Ég var að taka eftir því í dag að hann er farinn að fylla betur út í eins mánaðar fötin sem voru allt of stór á hann á fæðingardeildinni. Svo eru gallar sem hann var í þar sem eru strax komnir úr gildi því þeir eru orðnir of litlir. Jæja, nú ætla ég að grípa tækifærið á meðan hann sefur og fá mér aðeins snarl og hvíla mig. Ég þarf að vera stöðugt drekkandi og borðandi til að hafa við að gefa honum gott að borða ![]()
Aftur í vinnuna
By Rikki on Feb 12, 2008 | In Main category
Ég fór loksins í vinnuna í dag. Mér líður eins og það sé vika síðan Úlfur fæddist. Hvernig þetta ætli verði á Laugardagin þegar það verður raunverulega komin vika ?
Ég sendi þjóðskrá afrit af fæðingarvottorðinu í dag og bar um að Úlfur yrði skráður sem Íslendingur. Vonandi gengur það allt vel.
Það er stefnt á að Ásta og Úlfur útskrifist á Föstudagsmorgun. Þá er eins gott fyrir mig að vera mættur á staðinn á mótorhjólinu til að skutla þeim heim .. Neinei, smá grín, auðvitað fer kærleiks fjölskyldan í bíl.
Ásta fékk heila körfu af vínberjum frá einhverjum sem komu að heimsækja hana í fyrradag og er búin að vera dugleg að borða úr henni. Svo í dag sagði ein fóstran að allt sem hún borðaði færi nú beint í magann á Úlfi (Já var ég búinn að segja ykkur frá því, mjólkin er komin svo nú fær Úlfur bara kjarnafæði og vínberin gætu verið ástæðan fyrir því að það er mikið loft í honum)
Hún má ekki borða neina sítrus ávexti en epli og perur eins og hún vill. Það er útimarkaður hérna nálægt í fyrramálið þannig að ætli ég taki ekki með nokkur epli í næstu heimsókn.
Vissuð þið að það er hægt að “bólusetja” fyrir “blóðflokki” ?
Þannig er að ég er í blóðflokki A+ og Ásta í A-, þetta getur víst valdið einhverjum vandamálum í fæðingum, en til að koma í veg fyrir að það gerist er hægt að gefa konuni einhverja sprautu sem virkar fyrir lífstíð. Eða það er amk það sem ég skildi. Veit einhver hvað ég er að tala um ?
Ójá, nú var ég næstum búinn að gleyma myndum kvöldsins !
- Rikki
Kominn með Franskt Fæðingarvottorð
By Rikki on Feb 11, 2008 | In Main category
Þá er hann Úlfur kominn með Franskt fæðingarvottorð. Ég fór í morgun og tilkynnti hann fæddann og fékk 8 eintök af fæðingarvottorðum og “útdrætti út fæðingarvottorði” til að senda til hægri og vinstri og tilkynna hann inn í öll frönsk kerfi.
Einnig fékk ég “heilsufarsbók” sem á að fylgja honum og sem í eru upplýsingar um sprautur, ofnæmi og allar læknisskoðanir sem hann á að fara í ásamt fleiru (samtals fleiri tugir síðna til að fylla út ásamt eyðublöðum fyrir “total” læknisskoðanir).. Úff frakkar elska skrifræðið.
Úlfur sefur mikið og sofnar oft í “miðju brjósti", þegar hann er að borða. Ásta fékk þær leiðbeiningar hjá einum barnalækninum að hún gæti sett hann upp á handleggin og strokið laust á honum bakið og þá mundi hann “vakna létt".
Þannig að þegar kom að næstu brjóstagjöf og Úlfur lokaði augunum og sofnaði eftir 4 sopa, þá fylgdi Ásta leiðbeiningunum og fór að strjúka á honumn bakið.
Úlfur opnaði þá annað augað, ropaði fyrst, prumpaði svo, og fór svo aftur að sofa.
- Rikki
Fyrsti dagurinn
By Rikki on Feb 10, 2008 | In Main category
Þá er Úlfur orðin eins dags og nógu stór til að þurfa ekki fæðingarhúfuna sína lengur, eða það sögðu amk fóstrurnar. Við höfðum hana samt á svona til að honum yrði ekki kalt.
Ég veit ekki hversu mörg ykkar tóku eftir því en ég bætti við einni mynd í gærkvöldi þegar ég sá að hún hafði ekki farið með, eins og ég ætlaði.
Það er víst eðlilegt að börn sem fá bara brjóst missi smá þyngd á milli þess að þau fæðast og þess að móðirin byrjar að framleiða mjólk. Vegna þess hversu Úlfur var léttur þegar hann fæddist þá fær hann nú alltaf pelamjólk á eftir brjóstinu.
Hann Úlfur Fróði:
fæddist 9. Febrúar 2008
var 2590 grömm á þyngd og
45,5 cm á lengd og
ummál höfuðsins var 34 cm (alltaf mælt í Frakklandi)
Hérna eru síðan nokkrar myndir í vðbót.
- Rikki