Í 2 metra háu grasi
By Rikki on May 31, 2008 | In Main category
Þá erum við komin aftur frá Normandy, úlfur búinn að sofa við vindinn og fuglana og fara út að ganga í skóginum.
Normandy er líklega með frjósömustu héruðum í frakklandi og þegar við komum í sumarhúsið eftir að það hafði staðið tómt frá áramótum þá var grasið og gróðurinn næstum tveggja metra hátt sums staðar.
Úlfur er orðinn eins og Energizer kanínan þegar maður er að skipta á honum. Það er orðið mun erfiðara að klæða hann og setja nýja bleyju á hann.
Annars var þetta bara róleg ferð og afslappandi eins og hún átti að vera. Myndir hérna !
Farin 4 daga til Normandy
By Rikki on May 27, 2008 | In Main category
Þá fer að koma að því að Ásta fer í vinnuna og ég verð heimavinnandi húsfaðir. Núna erum við búin að leigja bílaleigubil og erum á leiðini í sumarhús sem kuningi okkar lánaði okkur.
Ásta er hérna við hliðina á mér og vil að ég lofi “upp í ermina á mér” að við setjum inn myndir “bráðum” ![]()
OK, “við setjum inn myndir bráðum” ![]()
Við komum aftur á föstudagskvöld .. þá skal ég setja inn nokkrar myndir úr ferðini.
Ó, já .. gleymdi næstum .. Úlfur er farinn að hlæja .. hann gerir það stundum þegar það er búið að sprella í honum nógu lengi þegar hann sér eitthvað nýtt ..
Ok, bless í bili ..
- Rikki
Vorið er að koma
By asta on Apr 30, 2008 | In Main category
Jæja, þá er tími til að blogga soldið því hér er að koma vor. Við erum búin að fá einn virkilegan sumardag með 23. stiga hita en annars er bara búið að vera milt og bjart veður með rigningu öðru hverju. Það kemur sér aldeilis vel því við erum farin að vera svo mikið úti. Við höfum skroppið gangandi niður í bæ (mamma gangandi þ.e.a.s., Úlfur í poka framaná) og farið í picknick í görðum borgarinnar. Nú er hægt að sitja í grasinu svo við getum haft það gott undir tré. Um daginn fórum við í Parc Monceau þar sem eru gamlar rómverskar rústir og um helgina fór öll fjölskyldan í Luxemborgargargarðinn. Hann er á vinstri bakkanum, risastór, með allskonar aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Ég var t.d. ekki sú eina að gefa brjóst, og í barnagarðinum fengum við smá innsýn inn í hvernig þetta verður í sumar. Það var svo heitt úti að við ákváðum að prófa kerruna góðu. Svo fékk Úlfur sólaráburð, hatt og sólgleraugu til að vera við öllu búinn í svona brakandi blíðu. Ég setti inn nokkrar nýjar myndir og það eiga eftir að koma fleiri frá Rikka.
En nú ætlum við að fara að græja okkur til að skreppa til heimilislæknisins okkar, hennar Dr. Elbaz. Nú er kominn mánuður síðan Úlfur fékk lyfin við bakflæðinu og mér finnst honum hafa batnað mikið. Annars er þetta víst líka þroskaatriði, maginn þarf að þroskast til að vöðvarnir virki rétt til að halda öllu niðri. Allavega finnst mér að hann sé allur að koma til og lyfin hafa gert honum gott. Best að sjá hvað læknirinn segir.
Afi og amma komu í heimsókn
By asta on Apr 8, 2008 | In Main category
Jæja, þá hef ég loksins fundið tíma til að blogga um heimsóknina sem við fengum. Afi og amma, Egill og Gréta komu til okkar í viku ti að kynnast nýjasta fjölskyldumeðlimnum. Þau voru mjög glöð að hitta ungann mann sem er farinn að brosa og leika sér, og tóku fullt af myndum (sem eru komnar inn). Svo eru þau orðin svo heimavön að þau fóru allra sinna ferða sjálf, versluðu og borðuðu á kaffihúsum eins og innfæddir. Svo höfðum við það gott saman á kvöldin yfir kvöldmat sem við skiptumst á að elda.
Annars er Úlfur búinn að vera með bakflæði og þurfti að fara til læknis út af því. Þessi rólegheitastrákur sem var alltaf svo vær, var allt í einu farinn að gráta daginn út og inn og hrökkva upp af værum blundi grátandi. En sem betur fer kannaðist læknirinn alveg við þetta og lét hann strax fá lyf sem eru núna farin að virka. Hann var nokkra daga að ná sér, sennilega bara orðin soldið sár að innan eftir þetta, en nú stendur það stendur allt til bóta. Við vorum alveg inni í gær því að það er búið að vera svo kalt úti, en í dag kom mjög gott veður svo við skruppum aðeins í bæinn með strætó. Þar komumst við að því að Galerie Lafayette er með fínustu aðstæður til að skipta um bleyjur og stól fyrir mömmurnar til að gefa brjóst. Við nýttum okkur þetta til fullnustu enda höfðum við svæðið alveg fyrir okkur. Svo nú er planið að finna alla bestu staðina í París til að fara með ungabörn svo við getum farið að skoða heiminn.
Orðinn sex vikna
By asta on Mar 24, 2008 | In Main category
Jæja, þá er Úlfur Fróði búin að ná þessum áfanga sem er talinn svo merkilegur, orðinn sex vikna (nýjar myndir í astasol myndagaflokknum). Það var eins og við manninn mælt, morguninn eftir byrjaði hann að brosa. Hann brosti meira að segja til pabba síns um nóttina þegar hann var að skipta á honum, en ég var of syfjuð til að fatta það. Við lékum okkur bara saman um morguninn með Angie bangsa sem spilar lag, Frikka fiðrildi og Mímí gíraffa, og Úlfur var í fyrsta sinn með fulla athygli og með á nótunum um hvað við værum að gera. Svo brosti hann aftur og aftur þegar honum fannst gaman - sérstaklega til tuskudýranna sem brosa til hans á móti. Annars er hann næstum alveg farinn að halda höfði og lyfta sér aðeins upp þegar hann liggur á maganum, svo mér finnst hann bara næstum vera orðinn 25. Við erum búin að eiga góða páska, borða gæða páskasúkkulaði (Úlfur fékk reyndar bara kókómjólk þetta árið) og dýrindis páskasteik. Svo í dag notaði ég tímann þegar hann vildi sofa í fanginu á mér og fann alskonar barnalög á netinu sem ég kóperaði og bjó til söngbók Úlfs Fróða. Hún er strax orðin margar síður, en svo má alltaf bæta við smátt og smátt. Reyndar er hún nú aðallega fyrir mömmuna fyrst um sinn, sem er orðin ryðguð í lögum og textum, en það stendur til bóta.
Loksins meira blogg
By asta on Mar 16, 2008 | In Main category
Jæja, þá er Úlfur Fróði orðinn 5 vikna síðan í gær og ég var að setja inn fullt af myndum af honum áðan. Hann er nefnilega allur að braggast, orðinn kinnamikill og algjör orkubolti. Svo er ég að venjast því að þurfa að gera allt í smá hlutum - klára uppvaskið í þremur atrennum og svoleiðis. Hann er nefnilega farinn að sofa meira á nóttunni, vaknar bara tvisvar stutt til að fá sér smá snarl og láta skipta á sér, en hinsvegar er hann hressari á daginn. Vill láta tala við sig og rölta með sér um. Svo held ég að hann sé farinn að undirbúa það að byrja að brosa bráðum. Brosir út í annað af og til og er oft voðalega hamingjusamur á svipinn. Þessu öllu fylgir að foreldrarnir stoppa ekki allan daginn: gefa að borða, og svo ábót, skipta, út að labba (það finnst okkur gaman
). Á mánudaginn var svo eins mánaðar læknisskoðunin, og Úlfur Fróði er endanlega komin yfir 3ja kílóa markið: 3300 gr. svei mér þá. Þannig að nú er hann opinberlega orðinn stór strákur!
5 vikna myndirnar eru hér