• Blog A
  • Blog B
  • Linkblog
  • Ásta Sólveig

Dagbók Ástu Sólveigar

Bloggað frá París
  • Home
  • Contact
  • Log in
  • September 2010
    Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
     << <   > >>
          1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30    
  • Dagbók Ástu Sólveigar

  • Long Description: Long Description: Long Description: Long Description: Long Description:

    • Recently
    • Archives
    • Categories
    • Latest comments
    • Myndir
  • Search




  • Categories

    • All
    • Main category
  • XML Feeds

    • RSS 2.0: Posts, Comments
    • Atom: Posts, Comments
    What is RSS?

Dagur 8 - Vika 2 hefst

By Rikki on Jun 9, 2008 | In Main category

Þá er fyrsta helgin búin, ég var að mestu að reyna að hvíla mig í hnjánum. Mig verkjaði bæði innan og utan í hnjáspæturnar. Líklega af því að vera farinn að hlaupa út um alla íbúð og um alla borg með kerruna.

Annars er núna 9. Júní og það merkir að Úlfur er orðinn 4 mánaða, við Ásta erum tveir stoltir foreldrar af að hafa komið honum þetta langt og að hann sé orðinn þetta myndarlegur (ég verð að fara að láta fylgja myndir :)

Dagur 5 - Syngjandi hér, syngjandi þar, syngjandi geng ég alls staðar.

By Rikki on Jun 6, 2008 | In Main category

Hafið þið spáð í hvað er hægt að gefa frá sér marga “hljóðflokka” ?

Það er t.d. hægt að tala, hvort sem það er hægt, hratt, lágt eða hátt.

Það er hægt að blístra hin ýmsu hljóð.

Það er hægt að nota líkamann til að mynda ýmis hljóð, eins og að smella tungu í góm, blása út kinnarnar og slá á þær með fingurgómunum, mynda “Helli” með munninum og slá ofan á hausinn á sér.

Þessu fór ég að spá í í gær þegar ég þurfti að róa Úlf aðeins niður og ákvað að blístra aðeins (trikk sem Ásta var búin að kenna mér).

Annars er maður farinn að hugsa allt upphátt, “nú ætla ég að sækja sokka í skúffuna og klæða þig í þá", “nú ætla ég að sækja nýja bleyju, hún er hérna, og síðan er best að muna eftir bómullinni og rassakreminu".

Að ógleymdu því að maður syngur stundum bara það sem maður ætlar að segja og er útkoman þykir manni bara stundum nokkuð góð .. Það er verst að maður er búinn að gleyma bæði lagi og texta eftir 5 mínútur. Og ég sem var að spá í að gefa út plötu með þessu frábæra lagi.

Dagur 4 - Dagurinn er ekki minn.

By Rikki on Jun 5, 2008 | In Main category

Eftir smá andvöku í nótt vaknaði ég loks kl 7:19 úlfur var ennþá sofandi og var að dreyma eitthvað illa.

Þegar Ásta vildi endilega setja hann í dagsfötin sagði ég “passaði að hann pissi ekki á þig", því úlfur hefur einstakt lag á því.

Auðvitað pissaði hann svo þannig að það þurfti að setja hann tvisvar í föt :)

8:48 Ásta fer í vinnuna

10:00 Eftir að Úlfur er búinn að drekka og syngja um “meiri mjólk” sofnar hann ofaná bringuni á mér. Ég leifi honum að lúlla þar þangað til ég fer að fá í bakið 10 mínútum síðar.

10:15, ég vaska upp og byrja þessa færslu.

10:40 Úlfur vaknar ..

21:13 Úff ég er alveg búinn .. þessi dagur var erfiður.. nú fer ég að sofa.

Lærdómur dagsins:
Barnauppeldi gengur mikið út á að “fylla upp í allan dagin", sumt er hluti af dagskránni og sá tími er þegar frátekin, en annar tími er fullur af atburðum sem maður annaðhvort reynir að láta vara sem stysta eða lengsta, eftir því hvers kyns þeir eru.

Dagur 3 - "Þú verður aldrei eðlilegur aftur"

By Rikki on Jun 4, 2008 | In Main category

Dagurinn byrjaði kl 6:58, ég hafði sofið inni í stofu og vaknaði við að úlfur var farinn að hjala eins og óperusöngvari við mömmu sína inni í svefnherbergi, ég skreiddist á fætur og tókst að skríða inn til þeirra.

“Halló úlfur” sagði ég, og tók þá eftir að Ásta horfði eitthvað undarlega á mig. Smá “system check” leiddi í ljós að ég leit ekkert mikið betur út heldur en í gærkvöldi.

“Já", sagði ég hálf sofandi, “ég ætla að byrja að taka ‘ging sengið’ í dag svo ég verði eðlilegur aftur". Ásta leit á mig með samblandi af sposkum svip og stóru meinlegu glotti. “Þú verður aldrei eðlilegur aftur” sagði hún.

-o-

Ásta fór 8:50 í vinnuna og úlfur fór í dagsfötin.

09:55 eftir að hafa hlustað á grátinn í hálftíma skildi pabbi Úlfs loksins að barnið var svangt og hitaði 30 ml af mjólk í pela handa honum. Úlfur sofnaði síðan með túttuna uppi í sér, alveg gat á skilninglseysi pabba síns.

10:05 Ég hengi upp úr þvottavélini.

11:01 Úlfur vaknar stundvíslega eftir 1/2 tíma blund.

Eftir nokkur bleyjuskipti borðaði hann aftur kl 12:00, vil síðan ekki fara að sofa og verður órólegur.

12:40 Ég bý mér til tvær tröllasamlokur með mortadella, tómata kavíar og parmesan. Hugmyndin var að Úlfur væri í sófanum og léki sér á meðan ég borðaði. “En úlfur nú verð ég að borða, þú verður bara að liggja þarna á meðan og horfa á mig", sagði ég, en auðvitað endaði ég með hann á hnéinu, aðra hendina utan um hann og með hina til að borða samlokurnar mínar.

12:45 Ég finn eitthvað leggjast á vinstri framhandlegginn á mér. Úlfur var orðin þreyttur á að horfa á Baby-TV og sofnaði á lærinu á mér. Ég fór með hann inn í rúm.

13:30 Úlfur vaknar og verður órólegur, (Ég ætti nú að fara að fatta hvað er að)

13:45 Úlfur orðinn alveg snar og væri líklega búinn að hringja á barnaverndarnefnd ef hann hefði farsíma.

14:00 Úlfur drekkur sinn stærsta skammt ti þessa, líklega 130 ml af mjólk. Elsie heimilishjálpin okkar kemur. Eftir matinn verður úlfur slappur og fer að hjala og babbla eins og drukkin pólskur sjómaður (Eða má maður ekki segja “Pólskur” ?, “Færeyskur” þá.).

15:00 Við förum út að ganga og röltum um hverfið til 17:00

17:15 Úlfur borðar aftur og verður skraf hreifinn.

18:20 Ásta kemur heim.

Þetta fer nú allt að koma hjá okkur. Fyrir utan að hafa snúið mig á ökla í gær og hafa tekið 3 íbúbúfen í dag þá held ég að ég fari bara að ná tökum á þessu.

Bless í bili,
- Rikki öklasári

Dagur 2 - 30 mínútur til að gera allt

By Rikki on Jun 3, 2008 | In Main category

Úff klukkan er 11:32 og Úlfur nýsofnaður, ég hef c.a. 30 mínútur til að gera það nauðsynlegasta (Borða og Blogga, í þessari röð :)

Úlfur var bara hress og glaður í gærkvöldi eftir að Ásta kom heim og sofnaði ekki fyrr en kl 21:00 í stað 20:00. Vildi bara leika við mömmu sína skælbrosandi. Svaf síðan bara vel og var meira að segja sofandi þegar ásta fór framúr kl 7:20 til að fara í sturtu (hefur ekki gerst áður)

Morguninn gekk bara vel hjá okkur, ásta gaf honum og fór í vinnuna kl 8:40 (hún þarf ekki að vera mætt fyrr en 9:30), þá skiptum við um bleyju á honum og klæddum hann í “dagsfötin".

Síðan lékum við okkur saman, flokkuðum snyrtibudduna mína, lásum á reikningana frá Gasfyrirtækinu og farsímareikningana mína og hann horfði á “Baby TV” (meðan ég las fréttirnar á netinu). Já og settum eina nýja bleyju á hann.

Síðan kl 11 fer Úlfur að ókyrrast (hann gerir það vanalega kl 10:30) og þá hitaði ég pela meðan hann kvartaði yfir því að eiga ömurlega æsku og vera ekkert elskaður í þessu lífi.

Síðan um leið og ég var búinn að setja á hann smekk, koma okkur fyrir í matarstellingunum og smella túttuni upp í hann þá stein þagnaði hann, drakk nokkra sopa og fór síða að lygna aftur augunum.

Ég þurfti að tala rólega við hann og stjúka á honum kinnina til að hann gæri ekki svangur að sofa.

Núna er Úlfur semsagt sofandi, ég að pikka þetta inn og “Biryani Chicken” að hitna á pönnuni fyrir mig.

Meira síðar …

-O-

Úlfur vaknaði á slaginu 12:00 og ég þurfti að borðaseinustu 2 kjúklingabitana sitjandi á rúminu við hliðina á honum. Hann varð svo fljótlega órólegur og ég setti hann þá í Baby Björninn og þannig skemmtum við okkur og dönsuðum í stofuni til kl 2 þegar hann fékk aftur að borða.

Síðan fórum við út í “Paris Store” til að kaupa Malt og 2 pakka af extra sterku Eðal Gingseng handa mér, svo ég haldi sönsum. Ég byrja að taka það í fyrramálið.

Ásta kom svo kl 18:45 með mjólk og “innocent” ávaxtasafa, ásamt Pizzu sem við ætlum að borða á eftir. Við börðum ekkert oft Pizzu, við erum bara alveg búin núna.

Hausin á mér er eins og hann hafi verið að snúast í hringi í allan dag, sem er reyndar nokkurnvegin það sem hann er búinn að vera að gera.

Lærdómur dagsins er að maður hefur svona 30 mínútur á dag til að gera allt sem maður þarf að gera fyrir sjálfan sig, þ.m.t. borða hádegismat.

Bless í bili..

- Rikki Þreytti

Dagur 1 - Heimavinnandi Húsfaðir

By Rikki on Jun 2, 2008 | In Main category

Ásta og Úlfur Í Normandy
Þá er komið að því .. Við Úlfur verðum einir heima og Ásta fer í vinnuna ..

6:00 Úlfur vaknar og vil fá að borða .. Ásta gefur honum brjóst.

6:10 Úlfur búinn að borða og vil setjast upp til að prumpa og gera í bleyjuna.

6:11 Ælir yfir Ástu – Ég tek hann og læt hann sitja á uppréttum hnjánum á mer

6:12 Tarzan (Stóri svarti kötturinn okkaar) ákveður að hann sé afskiptur í lífinu og hoppar upp á milli okkar í rúminu

6:12:15 Ég hendi Tarzan fram úr

6:20 Busta tennur og byrja þessa færslu .. Ég hef á tilfinninguni að þetta verði langur dagur.

-o-

6:38 Ég fer í Sturtu og borða morgunmat .. Stend mig að því að standa og stara á ristaða brauðið með smjörinu og hugsa “hvað kemur aftur næst ,, æ já álegg” .. er svo næstum farinn út að ganga með mjólkurfernuna..

7:45 Úlfur orðin leiður á að liggja á rúminu og borða bangsann sinn meðan hann talar við okkur. Tími kominn á að taka hann upp og “sýna honum íbúðina” í 100 skipti.

8:09 Ásta gefur Úlfi í seinasta skipti áður en hún fer í vinnuna. Úlfur sofnar.

8:40 Ásta kemst að því að uppáhalds vinnu blússan hennar hefur skroppið saman yfir brjóstkassann.

8:50 Ásta fer í vinnuna .. Nú byrjar gamanið …

-o-

9:20 Úlfur vaknar og “skoðar Íbúðina” í 101 skipti.

10:10 Búinn að klæða strákinn. tók 2 tilraunir .. er að pikka þetta með annari hendi ..

10:25 úlfur orðinn svangur er að hita pela.

11:28 Þetta gekk svona la la .. Úlfur borðaði alveg þangað til ég sagði honum frá því að Mamma væri farin í vinnuna og Pabbi yrði með honum í dag. Þá kom skeifa og Búhúhúhú … En nú sefur hann.

12:15 Úlfur vaknar ..

13:00 Borðar smát og smátt úr hálfum pela ..

14:30 Förum út að ganga, Úlfur sefur allan tímann.

17:05 Komum aftur heim, úlfur bara rólegur og brosandi.

17:18 Ásta kemur snemma heim úr vinnuni ….

Þá er fyrsti dagurinn búinn, þetta gekk stórslysalaust, nema hvað Úlfur grét smá í morgun og ég lét hann bara gráta í smá tíma og fékk svo samviskubit ….

Bara 19 dagar eftir ..

<< 1 2 3 4 5 >>

©2010 by Ásta Sólveig Georgsdóttir | Contact | evoCamp skin | Credits: Blog Design | blog software | webhost | monetize blog