Fullt af myndum
By asta on Sep 14, 2008 | In Main category | Send feedback »
Hæ hæ allir,
þá er ég loksins búin að setja inn myndir sumarsins. Fullt frá sumarfríinu á Íslandi, skýrninni meðal annars, og svo nokkrar nýlegar héðan því að Úlfur var að verða sjö mánaða þann 9. sept. Á nokkrum myndum er hann með nýju dagmömmunni sinni, henni Önnu, sem mun passa hann í vetur. Það gengur mjög vel það sem af er. Gleymdi að setja inn myndir af honum með Virginie, sem passaði hann í Júlí, en geri það næst. Sigga var hjá okkur í 3 vikur og er nýfarin til Kína. Hún ætlar að flakka með vinum sínum í 6 mánuði um þann heimshluta.
Kær kveðja, Ásta Sólveig
Mánuðurinn að verða búinn
By asta on Jun 29, 2008 | In Main category | 2 feedbacks »
Jæja, þá er ég loksins að blogga sjálf, búin að vera að vinna í næstum því mánuð. Það er búið að ganga eins og í sögu, Rikki og Úlfur hafa haft það mjög gott saman á meðan ég er í vinnunni, meira að segja komið í heimsókn tvisvar og sótt mig í vinnuna. Ég hef líka passað mig að fara rólega af stað til að þetta verði ekki of snögg viðbrigði fyrir Úlf. Svo skil ég alltaf eftir mjólk sem á að duga að mestu leyti fyrir daginn. En nú er Rikki að fara að vinna eftir helgi svo við fáum lánaða barnfóstru hjá Emmu, vinkonu og vinnufélaga, í júli. Hún er að koma í kaffi á eftir til að hitta Úlf. Svo erum við bara að koma heim í sumarfrí bráðum. Okkur er farið að hlakka mikið til ![]()
Ég læt fljóta með nokkrar myndir frá því í morgun…
Dagur 17 - Vísitöluforeldrar
By Rikki on Jun 18, 2008 | In Main category | 1 feedback »
Hér er svosem ekki mikið að frétta.
Við Úlfur fórum og heimsóttum Mömmu í vinnuna í gær og fórum síðan í vinnuna hjá Pabba hans þar sem allir dáðust að honum og hrósuðu Pabba hans með “Job well done” ![]()
Aðstoðarfólk aðalritarans var eins og það hefði aldrei séð barn áður og starði bara og spurði hvað hann héti og hvaðan nafnið væri,, hvað hann væri með fallegt hár o.s.frv.
Síðan fór öll fjölskyldan heim með strætó og við Ásta keyptum nýja tegund af þurrmjólk handa honum, því hann fæst ómögulega til að drekka þetta þykka sull sem á að hjálpa honum að halda mjólkini niðri. Hann þarf heldur ekki lengur á því að halda eftir tímana hjá hnykklækninum..
Já, hnykklæknirinn (Osteopath), við Úlfur fórum til hans á Mánudaginn og hann fór afar varlega með Úlf og mér sýndist hann nú ekki vera að gera mikið, en ég held að hann hafi gert eitthvað með fingrunum þegar hann hélt undir bakið á honum og höfuðið.
Úlfur er í öllu falli orðinn fínn og vandamálið með að hann geti ekki snúið höfðinu til vinstri er alveg farið.
Við Ásta vorum að hlægja að því hvað við værum “dæmigerðir” foreldar. Barnið stjórnar öllu og við borðuðum kvöldmatinn kl 9:40 í gærkvöldi og fórum á fætur eins og draugar eldsnemma í morgun með áhyggjur af því að Úlfur hefði það ekki nógu gott.
O jæja, hann drakk þurrmjólkina í morgun, þannig að nú er hægt að fara að venja hann við hana smátt og smátt þannig að ég geti farið með hann í heimsóknir og aðrar lengri ferðir.
Bless í bili,
- Rikki
Dagur 12 -
By Rikki on Jun 13, 2008 | In Main category | Send feedback »
Úlfur fór ekkert út að ganga í gær. Hann var eitthvað slappur og sofnaði heima og ég leifði honum bara að sofa. Hann sofnaði fyrst eins og vanalega kl 9:40 en í stað þess að sofa í 30 mínútur þá svaf hann í 1 klukkustund og 40 mínútur.
Hann drakk líka óvenju mikið og kl 2 var öll “mömmumjólkin búin". Hann fékk því bara duftmjólk kl 5 þegar hann vaknaði og á klukkutíma tókst honum a drekka 100ml af henni.
Annars er það spaugilegt að horfa á hann þegar honum er boðin duftmjólk. Hann drekkur 1-2 sopa og síðan kemur gretta sem segir “Hvurn djö**** settirðu eiginlega í pelann minn ???”
Ég veit ekki hvort það var duftmjólkin eða bara Úlfur að jafna sig á því sem gæti hafa verið að hjá honum í gær, en hann vaknaði kl 5:20 í morgun… ofur–hress !
Í dag er Föstudagur og mig er farið að hlakka til hvíldarinnar á Sunnudaginn. Ekki vegna þess að Úlfur sé svona erfiður (hann er það ekki) heldur eru hnéin á mér farin að kvarta líklega vegna þess að ég þurfti að halda mikið á Úlfi í gær og “sýna honum íbúðina” ![]()
Dagur 10 - Myndir
By Rikki on Jun 11, 2008 | In Main category | Send feedback »
Dagur 9 - Matartíminn var eitt sinn á milli 12:00 og 13:00
By Rikki on Jun 10, 2008 | In Main category | Send feedback »
Nú borða ég bara þegar Úlfi hentar ..
Ég fór að hugsa um það kl 11 í morgun að nú væri ég farinn að vera svangur og það leið 1 og 1/2 tími þangað til Úlfur var orðinn nógu rólegur (sofandi) til að ég gæti borðað restina af grænmetisréttinum sem Ásta gerði á Sunnudaginn.
Annars eru helstu atburðir dagsins þeir að úlfur fyllti bleyjuna sína í morgun og ég þurfti að setja hann undir sturtuna og skipta sjálfur um bol. (Það voru örugglega 30°c hérna í dag þannig að maður var bara léttklæddur)
Þá borðaði hann frekar í minni kantinum (3 x 60ml í stað 3 x 90ml) og svaf bara 2 tíma á röltinu í stað 3 tíma.
Þá get ég sagt ykkur frá góðri hugmynd að gjöf. Við Ásta keyptum gjafabréf á tælenskri nuddstofu handa manninum sem lánaði okkur sumarhúsið. Við Úlfur fórum og skiluðum lyklunum í dag ásamt því að gefa honum umslagið. Þegar hann sá hvað þetta var (1 klukkustundar tælenskt ilmolíunudd) þá kom frekar kindalegur svipur á hann og hann sagði “ég mun aldrei þora þessu” ![]()
Þannig að svona nudd-tíma gjafabréf eru alveg stórsniðugt því þá mun viðkomandi aðeins þurfa að taka á sjálfum sér og víkka sjóndeildarhringinn.